Spilapartý föstudaginn 28. des hjá Betu!
Gleđileg jól
Nćsti hittingur!
Takk fyrir síđast !
Ég er komin heim í "Heiðardalinn" í orðsins fyllstu eða þannig.
Laugardagurinn var góður og stóð undir væntingum af minni hálfu, bara að sjá framan í ykkur gaf mér vítamínsprautu, alla vega er ég full áhuga og áræði til að halda ótrauð áfram. Þið eruð æðisleg, ég er svo kát með ykkur öll sem eitt.
Heimferðin varð heldur lengri en ég gerði ráð fyrir, ég vissi ekki betur en Baldur færi kl. 11 í gærmorgun, en þegar ég kom í Hólminn var búið að seinka ferðinni til kl.16, svo mín var nú ekki par ánægð og nennti ekki að bíða svo ég keirði allaleið heim, var komin kl. 15.30 og allt gekk eins og sögu, enda vön kona við stjórnvöldin.
Rútínan komin aftur í gang; ganga, tæki, sallat, ávextir, baunir og sfv. Sami grautur í sömu skál, bara mismunandi krydd í tilveruna. Enda erum við ekkert nema vaninn, en málið er, að breyta út af vananum innan skinsamlegra marka. Rosalega er ég háfleyg, úbs, enda lítið mál um að tala en í að komast. EN ÞETTA LÆRIST SMÁ SAMAN OG EKKI GEFAST UPP ! ALDREI.
Munið svo að ætla mér tíma 16.des., því þá eru litlu jólin.
Bless elskurnar og bestu kveðjur að vestan, ykkar Kristjana
Blobb, blobb, blobb ...
| Hæ, hæ krakkar, maður fer nú bara að skammast sín fyrir að blobba ekki á síðunni okkar! Það er bara allt gott að frétta af mér, er mjög dugleg í ræktinni, mæti í Laugar World Class alla virka morgna og göngutúr eftir hádegi alla daga. Helsti akkilesarhællinn er matarræðið, vantar svo að kynnast góðum kokki..., er búin að halda mig svona 99,9% frá nammi og gosi. Er ekki farin að leita mér að vinnu ennþá en það fer að líða að því fljótlega, langar að fara að vinna eitthvað skemmtilegt og kynnast nýju fólki. Var í 6 daga ferð til New York í síðustu viku, rosa gaman, mikið að sjá, mikið étið og drinky, drinky :-). Náði annars í þar síðustu viku að sprengja 30 kg múrinn, já það eru bara heilir 30 sykurpokar foknir síðan byrjun apríl, barasta mjög ánægð með það. Skellti inn hallóvín myndunum úr partýinu hjá Þórhalli og Glenn frá síðasta laugardegi sem Eyrún sendi á maili. Var svaka svekkt að komast ekki, en var bara að skemmta mér í NY á sama tíma :-). Hlakka til að sjá ykkur á hælinu á laugardaginn, allir að mæta!!! Ég er nú duglegri að blogga á minni eigin síðu, þið kíkið kannski í heimsókn til mín: www.kleotony.bloggar.is ... later Ragna |
Draugagangur
Það er ákveðið að ég kem á næsta laugardagsfund í nóv. og mig hlakkar svo til að hitta ykkur þá.
Til gamans, þar sem Eyrún skrifaði upp ljóð síðast þar sem Tálknó kemur við sögu, þá er þetta að nokkru rétt þar sem Ciselski og fleiri komu hingað til vinnu eftir dvölina í Breiðuvík og bjuggu hér í verðbúð í nokkurskonar kommúnu. Það kom hér ótrúlega skrautlegt lið á vertíð meðan verbúðalíf var við líði. Hér rignir og rignir, það hefur ekkert breyst frá Hveragerði, enda örlar á uggum hér og þar svei mér þá.
Þá ætla ég ekki að hafa þetta lengra að sinni.
Kveðja, Kristjana komin með sundfit.
Upp upp mín sál ...
Sælt veri fólkið.
Stöðugt skyldi maður vinna í því að bæta og auðga líf sitt. Síðasta framtak mitt í þeim efnum var að skipta um disk í bílnum, fjarlægja hinn þunglyndislega "Wish you were here" með Pink Floyd og setja í staðinn "Tímana okkar"´með Sprengjuhöllinni, gleðisveit sem ég sá í Kastljósinu.
Ég verð að mæla eindregið með Sprengjuhöllinni, sérdeilis upplyftandi að hafa þá í bílnum. Textar þeirra lýsa íslensku mannlífi eins og það verður fegurst. Miklir andans menn þarna á ferð. Ég deili með ykkur smá broti, þar sem skáldið yrkir innblásið af örlögum rónans Glúms frá Neskaupsstað:
Svo keypti hann bát og dró sandhverfur úr sjó
Og sæddi snót sem á Tálknafirði bjó
Hún var ekki átján þá
Þó það erfitt væri að sjá
En nú er hún löngu búin að fá af honum nóg.
Hann þekkti víst Geirfinn og Ciesielski
var með þeim báðum í Breiðavík
það var lærdómsríkt.
Eigið góða helgi.
Ykkar Eyrún.
PS: Vigtin mín var í góðu skapi í gær.
Gjörhygli, núvitund, međvitund.
Ég má til með að deila með ykkur minni upplifun af að fara í 5 tugsafmæli og borða með gjörhygli. Þatta var fyrsta raunverulega áskorunin til að takast á við. Það er svo merkilegt hvernig löngunin hefur lagst einhvernveginn í dvala og er ekki að taka völdin eins og áður. Ég upplifi allavega að ég sé meðvitað sjálf við stjórnina, en ekki einhver púki inní mér. Ég borðaði fyrst heima 2tímum fyrr til að vera ekki svöng þegar á hólminn væri komið. Ég stóð mig rosa vel, þó ég segi sjálf frá, og hitaeiningarnar voru innan skekkjumarka. Síðan ég kom heim hef ég getað einbeitt mér að sjálfri mér og er að finna taktinn miðað við vinnu og heimili. Vinn bara 2 daga í viku, svo ég hef nógan tíma.
Vonandi gekk ykkur öllum vel í gær í vigtuninni, (Mörfríður stækkar vonandi og stækkar, fékk allavega 2 frá mér). Vonandi skemmtuð þið ykkur vel hjá Betu, þeir sem brugðu undir sig betri fætinum.
Jæja elskurnar ég heyri, eða sé frá ykkur vonandi sem oftast.
Kveðja, Kristjana