Gjörhygli, núvitund, meðvitund.
14. október 2007 klukkan 12:23
Hæ öll. 
Ég má til með að deila með ykkur minni upplifun af að fara í 5 tugsafmæli og borða með gjörhygli. Þatta var fyrsta raunverulega áskorunin til að takast á við. Það er svo merkilegt hvernig löngunin hefur lagst einhvernveginn í dvala og er ekki að taka völdin eins og áður. Ég upplifi allavega að ég sé meðvitað sjálf við stjórnina, en ekki einhver púki inní mér. Ég borðaði fyrst heima 2tímum fyrr til að vera ekki svöng þegar á hólminn væri komið. Ég stóð mig rosa vel, þó ég segi sjálf frá, og hitaeiningarnar voru innan skekkjumarka. Síðan ég kom heim hef ég getað einbeitt mér að sjálfri mér og er að finna taktinn miðað við vinnu og heimili. Vinn bara 2 daga í viku, svo ég hef nógan tíma.
Vonandi gekk ykkur öllum vel í gær í vigtuninni, (Mörfríður stækkar vonandi og stækkar, fékk allavega 2 frá mér). Vonandi skemmtuð þið ykkur vel hjá Betu, þeir sem brugðu undir sig betri fætinum.
Jæja elskurnar ég heyri, eða sé frá ykkur vonandi sem oftast.
Kveðja, Kristjana