Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Tenglar

Upp upp mín sál ...

19. október 2007 klukkan 19:52

Sælt veri fólkið.
Stöðugt skyldi maður vinna í því að bæta og auðga líf sitt. Síðasta framtak mitt í þeim efnum var að skipta um disk í bílnum, fjarlægja hinn þunglyndislega "Wish you were here" með Pink Floyd og setja í staðinn "Tímana okkar"´með Sprengjuhöllinni, gleðisveit sem ég sá í Kastljósinu.

 

Ég verð að mæla eindregið með Sprengjuhöllinni, sérdeilis upplyftandi að hafa þá í bílnum. Textar þeirra lýsa íslensku mannlífi eins og það verður fegurst. Miklir andans menn þarna á ferð. Ég deili með ykkur smá broti, þar sem skáldið yrkir innblásið af örlögum rónans Glúms frá Neskaupsstað:

 

Svo keypti hann bát og dró sandhverfur úr sjó

Og sæddi snót sem á Tálknafirði bjó

Hún var ekki átján þá

Þó það erfitt væri að sjá

En nú er hún löngu búin að fá af honum nóg.

Hann þekkti víst Geirfinn og Ciesielski

var með þeim báðum í Breiðavík

það var lærdómsríkt.


Eigið góða helgi.

Ykkar Eyrún.

 

PS: Vigtin mín var í góðu skapi í gær.

Skrifa athugasemd

Klukkan