Draugagangur
25. október 2007 klukkan 21:48
Halló, hér kem ég enn og aftur. Það verður að hafa það að ég skrifi annað hvert blogg, ekki gerið þið hin það. Ég ætla nú ekki að nöldra, en gaman væri að sjá færslur frá fleirum. Eyrún þú stendur þig vel. Því miður get ég ekki þegið boðið hans Þórhalls á laugardaginn, en mig dauðlangar og kannski verð ég með í anda sem draugur. Þannig að ef þið verðið vör við draugagang þá kippið þið ykkur ekki upp við það, enda verð ég þá líklega búin að fá mér "hallóvín" og fær í flestan sjó.
Það er ákveðið að ég kem á næsta laugardagsfund í nóv. og mig hlakkar svo til að hitta ykkur þá.
Til gamans, þar sem Eyrún skrifaði upp ljóð síðast þar sem Tálknó kemur við sögu, þá er þetta að nokkru rétt þar sem Ciselski og fleiri komu hingað til vinnu eftir dvölina í Breiðuvík og bjuggu hér í verðbúð í nokkurskonar kommúnu. Það kom hér ótrúlega skrautlegt lið á vertíð meðan verbúðalíf var við líði. Hér rignir og rignir, það hefur ekkert breyst frá Hveragerði, enda örlar á uggum hér og þar svei mér þá.
Þá ætla ég ekki að hafa þetta lengra að sinni.
Kveðja, Kristjana komin með sundfit.