Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Tenglar

Takk fyrir síđast !

12. nóvember 2007 klukkan 17:50
Halló öll.
Ég er komin heim í "Heiðardalinn" í orðsins fyllstu eða þannig.
Laugardagurinn var góður og stóð undir væntingum af minni hálfu, bara að sjá framan í ykkur gaf mér vítamínsprautu, alla vega er ég full áhuga og áræði til að halda ótrauð áfram. Þið eruð æðisleg, ég er svo kát með ykkur öll sem eitt.
Heimferðin varð heldur lengri en ég gerði ráð fyrir, ég vissi ekki betur en Baldur færi kl. 11 í gærmorgun, en þegar ég kom í Hólminn var búið að seinka ferðinni til kl.16, svo mín var nú ekki par ánægð og nennti ekki að bíða svo ég keirði allaleið heim, var komin kl. 15.30 og allt gekk eins og sögu, enda vön kona við stjórnvöldin. 
 Rútínan komin aftur í gang; ganga, tæki, sallat, ávextir, baunir og sfv. Sami grautur í sömu skál, bara mismunandi krydd í tilveruna. Enda erum við ekkert nema vaninn, en málið er, að breyta út af vananum innan skinsamlegra  marka. Rosalega er ég háfleyg, úbs, enda lítið mál um að tala en í að komast. EN ÞETTA LÆRIST SMÁ SAMAN OG EKKI GEFAST UPP ! ALDREI.
Munið svo að ætla mér tíma 16.des.,  því þá eru litlu jólin.
Bless elskurnar og bestu kveðjur að vestan, ykkar  Kristjana
já... það var gaman að sjá ALLAN hópinn á laugardaginn, vonandi mæta sem flestir ALLTAF!!! Setjum met í mætingu af öllum þessum hópum auk árangursmets.
Þarf að hugsa eitthvað svaka sniðugt fyrir gjöf á litlu jólunum 16. des, bara svo þið vitið það þá langar mig í GPS tæki en það á vísst að vera hottasta jólagjöfin í ár :-), treysti því að ég fái það...not!!
#1
13. nóvember 2007 klukkan 17:01

Skrifa athugasemd

Klukkan