Á vog í dag
04. október 2007 klukkan 17:23
Það er nú óneitanlega skemmtilegra að vigta sig í góðra vina hópi heldur en aleinn inná baði. Lá við að ég saknaði kjéllingarinnar sem var alltaf að drífa sig í sundlaugina. Það hafði ekki mikið þokast í rétta átt og ég kenni hiklaust vigtinni um það enda er samviska mín hrein eins og nýfallin mjöll.
kv.EG
kv.EG
Ein svolítiđ áttavillt
04. október 2007 klukkan 17:08
Hæ öll.
Ég kom á Akureyri í gær eftir góða ferð. Í morgun hófst svo nýr dagur með leit að góðum gönguleiðum. Allt gekk að óskum og ég fann eina við mitt hæfi með brekkum og puði. Það hefur gengið vel að borða innan skinsamlegra marka, fór ég út að borða með mínum manni á þriðjudagskvöld, fékk mér meira að segja eftirrétt, mmmmm. Nú hrelli ég bara tengdasoninn með súrmjólkursósum og þh. Ég viðurkenni þó að þetta tekur svolítið á þegar maður er vanur að fara hér á kaffihús með kaffi og kökuáti, fá sér pizzu, eða fara í bakaríið við brúna að fá sér súpu í brauði og fl.
Engin vigtun í morgun,vegna tæknilegra örðuleika, á næsta fimmtudag.
Jæja, nú er bara að vita hvort þetta kemmst til skila, ég er ekki sú flinkasta þegar tölvur eru annarsvegar.
Saknaðarkveðjur.
Kristjana, hugsandi til ykkar.

Leiđbeiningar fyrir blogg
03. október 2007 klukkan 15:56
Rétt fyrir neðan stóru myndina af okkur er gluggi þar sem textinn breytist t.d. risinn er risinn, bloggar.is, blogg fyrir fallega fólkið (þeir eiga við okkur :-)!!).
Klikkið þar á og þá opnast nýr gluggi með forsíðu www.bloggar.is
Í hægra horninu er INNSKRÁNING.
Þar setjið þið notendanafn og lykilorð. Þá opnast umsjónarkerfið.
Á vinstri hlið er bloggið, tvíklikka.
Tvíklikka þá á ný færsla og byrja svo að blogga.
Muna svo að vista færsluna og fara svo í útskrá.
Einnig er hægt að kommenta á færslur á bloggsíðunni sjálfri, www. O13.bloggar.is með því að ýta á textann fyrir neðan hverja færslu (engin athugasemd, 1 athugasemd, 2 ...).
Minni einnig á gestabókina!!!
Ef einhverjir vilja setja inn myndir er það gert á vinstri hlið í umsjónarkerfinu undir myndir.
Einnig er hægt að skrá undirsíður. T.d. er búið að setja dagskrá O13 inn á bloggið.
Þið sendið bara línu á Rögnu eða Allý ef þið lendið í vandræðum.
Nćst síđasta vigtun
28. september 2007 klukkan 23:12
Hópurinn fór í næst síðustu vigtunina í gær fimmtudag. Alls hafa 48,4 kg fokið á rúmum 3 vikum. Það gera 5,4 kg að meðaltali. Bara ansi gott hjá okkur.
Lokavigtun er á mánudaginn og verður gaman að sjá lokatöluna.
Nokkur ráð til að grennast mikið um helgina...
- borða bara vatnsmelónur
- drekka lítið vatn
- fara í regngallanum í gufuna
- skyrpa munnvatninu
- hreyfa sig mjög mikið
... eða bara taka þetta rólega og hlakka til þess að fá sér góðan mat á Rauða Húsinu með hópnum á sunnudagskvöldið; fá sér flottan humar, smá desert með og sötra gott hvítvín með. Við erum búin að tryggja okkur Soffíu og Þórhall sem bílstjóra um kvöldið :-)
kv
Allý og Ragna
22. september 2007 klukkan 22:26
Jæjja
Þá er búið að stofna blogg fyrir o hóp 13, og hér geta allir meðlimir hans bloggað um allt sem þá langar til að tala um. Hópurinn byrjaði í meðferð á heilsustofnun HVeragerðis eða HNFLÍ þann 3. september 2007 og hefur bara gengið alveg glimmrandi vel hjá okkur. Við útskrifumst þann 3. okt. Meðferðin tekur ár og byrjar þannig að fyrst er mánaðardvöl og svo mætum við annan hvern laugard. í hverjum mánuði og svo eftir 6 mánuði er viku innlögn og svo aftur eftir aðra 6 mánuði. Meðlimir hópsins eru :
Aðalbjörg (Allý)
Alda
Eva
Eyrún
Kristjana
Ragna
Soffía
Sveinbjörn
þórhallur.
Valdi
Og svo er bara að byrja að blogga og setja inn myndir ;);)